Fyrirtæki halda áfram að hækka verð þrátt fyrir mótmæli seðlabankans
Bandaríski seðlabankinn reynir nú að fá fyrirtæki til að hætta verðhækkunum þar sem verðbólguskot hafa reynst lífseigari en vonast var eftir.
Þrýstingur vegna verðbólgu hefur verið viðvarandi í ár, meðal annars vegna þess að fyrirtæki hafa átt auðvelt með að velta hærri kostnaði yfir á neytendur. Seðlabanki Bandaríkjanna reynir nú að hafa áhrif á fyrirtækin svo þau endurskoði áætlanir sínar um frekari verðhækkanir til að ná tökum á efnahagsástandinu.

