Stefnan hefur alltaf verið sett á heimsmeistaramótið
Þorsteinn Halldórsson landsliðsþjálfari segir markmið íslenska kvennalandsliðsins skýrt: liðið ætli sér sæti á HM í Brasilíu á næsta ári.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta býr sig nú undir tveggja leikja einvígi gegn Króatíu í október, en leikirnir eru mikilvægur áfangi í átt að heimsmeistaramótinu. Sigurliðið mun mæta annaðhvort Norður-Írlandi eða Portúgal í úrslitaeinvígi um laust sæti á HM 2027 í Brasilíu.
Þorsteinn Halldórsson, landsliðsþjálfari, kynnti hópinn í dag og gerði fimm breytingar. Nýliðarnir Líf Joostsdóttir van Bemmel og Emelía Óskarsdóttir eru í hópnum í fyrsta skipti.
„Við erum með það markmið og erum búin að vera með það allan tímann að koma okkur á HM og það er enn lifandi,“ sagði Þorsteinn. Hann lagði áherslu á að liðið yrði að sýna yfirburði sína á vellinum gegn Króatíu til að tryggja áframhaldandi vonir um stórmót.



