UEFA hefur áhyggjur af gríðarlegri eyðslu ensku úrvalsdeildarinnar
Knattspyrnusamband Evrópu telur að eyðsla ensku úrvalsdeildarinnar sé að skapa ójafnvægi á félagaskiptamarkaðnum.

UEFA hefur lýst yfir þungum áhyggjum af þeirri þróun sem er á félagaskiptamarkaði í knattspyrnu. Sambandið telur að enska úrvalsdeildin sé að verða svo öflug fjárhagslega að hún nánast ryksugi upp alla bestu leikmennina, sem leiði til þess að svokallað „tveggja hraða kerfi“ sé að myndast í Evrópu. Á síðasta félagaskiptaglugga eyddu ensk lið mun meiri fjármunum en lið í öðrum stórum deildum samanlagt. Þetta óttast UEFA að muni leiða til þess að deildin verði of einráð í alþjóðlegri samkeppni, svo sem í Meistaradeildinni.


