Ellefu ára drengur látinn eftir skotárás í Ástralíu
Ellefu ára drengur lést eftir að hafa verið skotinn á heimili sínu í Sydney. Hann barðist fyrir lífi sínu á sjúkrahúsi í þrjá daga.
Drengur í Hills-hverfinu í Sydney lést eftir að hafa verið skotinn í andlitið á heimili sínu. Hann var fluttur í lífshættu á sjúkrahús en lést þremur dögum síðar. Lögreglan rannsakar málið sem hefur vakið mikla sorg í Ástralíu.

