Macron varar við frekari herliðsaukningu Rússa
Emmanuel Macron, forseti Frakklands, segir merki um að Rússar undirbúi að kalla út 300.000 fleiri hermenn.
Emmanuel Macron Frakklandsforseti lýsti því yfir í viðtali við sjónvarpsstöðina TF1 að spenna færi vaxandi í Evrópu vegna aukinna ófriðaraðgerða Rússa. Hann sagði Frakka sjá vísbendingar um að rússnesk stjórnvöld stefni á að kalla út 300.000 hermenn til viðbótar. Macron lagði áherslu á að Evrópuríki þyrftu að vera á verði, bæði gegn beinum ógnum og upplýsingaóreiðu, enda telji Rússar Evrópu vera mikilvægan stuðning við Úkraínu sem þurfi að veikja.

