Úkraína íhugar lögleiðingu kláms til að fjármagna kaup á drónum
Stjórnvöld í Úkraínu skoða nú kosti þess að lögleiða framleiðslu á klámi til að auka skatttekjur sem nýst gætu til vopnakaupa í stríðinu gegn Rússlandi.

Í Úkraínu stendur nú yfir umræða um hvort lögleiða eigi framleiðslu og dreifingu á klámi. Markmiðið er að skapa nýja skatttekjustofna sem gætu hjálpað til við að brúa bilið í ríkisútgjöldum, sérstaklega vegna mikils kostnaðar við kaup á drónum og öðrum hergögnum. Þrátt fyrir að lögleiðingin gæti skilað milljónum í ríkiskassann er málið umdeilt en sumir telja að það gæti leitt til aukinnar nýtingar á konum. Hins vegar telja flutningsmenn frumvarpsins að með því að færa þennan iðnað í lögformlegan farveg megi bæði tryggja öryggi og auka tekjur ríkisins á erfiðum tímum.


.jpg?branch=production)