Harry Connick Jr. heiðrar móður sína með nýrri bók og plötu
Tónlistarmaðurinn Harry Connick Jr. gefur út bókina „Babe“ þann 29. september þar sem hann heiðrar minningu móður sinnar sem lést þegar hann var aðeins 13 ára.

Harry Connick Jr. hefur gefið út nýtt verk til heiðurs móður siinni, Anita-Francis Livingston Connick, í tilefni af því að hundrað ár eru liðin frá fæðingu hennar. Verkið samanstendur af bæði hljómsveitarverkum sem hann flutti í Carnegie Hall og nýrri bók sem geymir persónulegar myndir og sögur. Hann segist hafa geymt minninguna um móður sína innra með sér öll þessi ár og tónlistin hjálpi honum að tjá það sem orð fá ekki lýst.


