Afríkuleiðtogar krefjast sætis í öryggisráðinu
Margir forsetar Afríkuríkja krefjast þess að álfan fái fast á sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna og telja núverandi fyrirkomulag óverjandi.

Forsetar Gana, Líberíu, Kenía og Namibíu hafa stigið fram og krafist þess að Afríka fái varanleg sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna hefur tekið undir þetta og sagt að skortur á fulltrúa Afríku í ráðinu sé „óverjandi“. Joseph Nyuma Boakai, forseti Líberíu, lagði áherslu á að stór hluti þeirra verkefna sem öryggisráðið fjallaði um tengdust friði í Afríku og því væri nauðsynlegt að álfan ætti þar beina rödd.

.jpg?branch=production)
