Leó páfi mesaði yfir troðfullum leikvangi í Frakklandi
Páfinn fékk móttökur eins og rokkstjarna þegar tugþúsundir ungmenna sóttu messu hans á Stade de France leikvanginum.

Nærri 80.000 manns, að stórum hluta ungmenni, fylltu Stade de France leikvanginn í Saint-Denis til þess að sjá og heyra í Leó páfa XIV. Í predikun sinni fjallaði páfinn um baráttuna fyrir trúnni og lagði áherslu á að hún yrði að fara fram án ofbeldis, fyrirlitningar eða kúgunar, en ferð hans hefur vakið mikla athygli í hinu veraldlega Frakklandi.



