CNN segir fréttamönnum sínum hafa verið meinaður aðgangur að forsetavélinni
Fréttastofa CNN segir að blaðamönnum þeirra hafi verið bannað að fylgja Donald Trump forseta í Air Force One um helgina þegar ferðinni var heitið á fótboltaleik í Tennessee.

CNN greindi frá því að blaðamenn þeirra hefðu verið útilokaðir frá því að vera hluti af fréttahluta fjölmiðla sem ferðast með Donald Trump forseta í Air Force One þessa helgina. Fréttamennirnir áttu að fylgja forsetanum til Knoxville þar sem hann ætlaði að sækja háskólafótboltaleik. CNN átti að vera fulltrúi sjónvarpsstöðva inní þessum hópi um helgina, en breyting var gerð á því með litlum fyrirvara. Þetta er nýjasta uppákoman í stirðum samskiptum forsetans og helstu fréttastofa landsins.


