Fimm ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás og nauðgun
Fimm menn eru ákærðir fyrir hrottalega árás og frelsissviptingu þar sem þeir beittu fórnarlamb grófu ofbeldi með járnröri.
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst í fyrra. Í ákærunni kemur fram að mönnunum sé gefið að sök að hafa svipt manninn frelsi sínu, beitt hann grófu ofbeldi með bareflum og stungið járnröri í endaþarm hans. Árásin var tekin upp á myndband og henni dreift á samfélagsmiðlum. Maðurinn krefst tæplega tólf milljóna króna í skaðabætur vegna málsins.

