Nýtt hverfi í Colorado gefur innsýn í framtíð orkunotkunar á heimilum
Ný íbúðabyggð í Colorado er prófunarvettvangur fyrir jarðvarma sem gæti umbylt upphitun og kælingu heimila víða um Bandaríkin.

NÝ íbúðabyggð suður af Denver í Bandaríkjunum er nú notuð sem tilraunavettvangur fyrir óvenjulegt samstarf sem gæti breytt því hvernig heimili eru hituð og kæld í framtíðinni. Fyrirtækin Dandelion Energy og Lennar hafa lokið byggingu tæplega 100 heimila þar sem nýstárleg jarðvarmatækni er nýtt til hins ítrasta, sem gefur vonir um hagkvæmari og umhverfisvænni orkulausnir fyrir almenning.



