Trump spáir því að samkomulag náist milli Kúbu og Bandaríkjanna
Donald Trump lýsti því yfir í dag að hann teldi að samkomulag myndi nást á milli ríkjanna tveggja án þess að grípa til hernaðar.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, telur að samningar náist fljótlega á milli Bandaríkjanna og Kúbu. Hann sagði á blaðamannafundi í dag að hann teldi hernaðaraðgerðir óþarfar og að báðir aðilar sæju hag sinn í því að ná lendingu í deilumálum sínum. Þessi yfirlýsing markar ákveðin tímamót í samskiptum ríkjanna sem hafa verið stirð.



