Sameinuðu þjóðirnar skortir fjármagn til að mæta El Niño kreppunni
Aðeins fimmtungur þess fjármagns sem þarf til að búa sig undir matvælakreppu vegna El Niño hefur skilað sér til SÞ.

Sameinuðu þjóðirnar lýstu því yfir í dag að þær hafi aðeins fengið um tuttugu prósent af því fjármagni sem nauðsynlegt er talið til að bregðast við yfirvofandi hungursneyð vegna El Niño. Þetta veðurfyrirbæri ógnar matvælaöryggi milljóna manna víða um heim. Skortur á fjármagni gerir það að verkum að hjálparstarf gæti lamast.



