Yfirborðsleg nálgun á ljóðum Elísabetar Jökulsdóttur
Elísabet Jökulsdóttir er eitt mest aðlagaða skáld íslenskra sviðslista á öldinni, en nýleg verk byggð á skrifum hennar hafa verið áberandi.
Elísabet Jökulsdóttir er óðum að verða eitt mest aðlagaða skáld íslenskra sviðslista á þessari öld. Sviðsverk byggð á skrifum hennar hafa verið mjög áberandi undanfarin ár, svo sem einleikurinn Saknaðarilmur, sýningin Innkaupapokinn og leikritið Blóðuga kanínan. Nýjasta dæmið er kammeróperan „Ástin ein taugahrúga: Enginn dans við Ufsaklett“ sem hefur vakið athygli fyrir nálgun sína á ljóðlist skáldsins.


