Glæsileg gulrótauppskera við Flúðir: „Aldrei neitt sem jafnast á við bragðið“
Óskar Hrafn Eyþórsson á Grafarbakka ræktar um 50 tonn af gulrótum í haust og segir eftirspurnina mikla eftir íslensku gæðagrænmeti.
Haustið hefur reynst garðyrkjubændum í útirækt vel þrátt fyrir nokkra bleytu. Á bænum Grafarbakka við Flúðir hefur Óskar Hrafn Eyþórsson verið í óða önn við að taka upp um 50 tonn af gulrótum af þriggja hektara landi. Hann segir að fólk bíði alltaf með mikilli eftirvæntingu eftir nýuppskornum íslenskum gulrótum, en það sé fyrst og fremst bragðið sem geri þær svo vinsælar. Á svæðinu er einnig verið að taka upp hvítkál, blómkál og fleiri káltegundir sem virðast ætla að skila góðri uppskeru í ár.


