„Maður getur ekki unnið“ – Írska landsliðið spilar gegn Ísrael þrátt fyrir mótmæli
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Írlands, segir stöðuna afar erfiða en leikmenn hafa ákveðið að spila leikinn gegn Ísrael í Þjóðadeildinni.

Írsku landsliðsmennirnir greiddu atkvæði á lokuðum fundi um að spila landsleikinn gegn Ísrael, en Heimir Hallgrímsson, íslenski þjálfari liðsins, viðurkennir að hópurinn sé nálægt því að bresta undan álaginu. Einn leikmanna, Gavin Bazunu, neitaði að mæta til leiks í mótmælaskyni. Heimir lýsir stöðunni sem sjálfheldu þar sem báðir valkostir séu slæmir.


