Almannavarnarástandi lýst yfir við breska herstöð
Nokkrir hafa verið handteknir vegna gruns um brot á lögum um sprengiefni við Fairford herstöðina þaðan sem bandarískar vélar fljúga.

Lögreglan í Gloucestershire lýsti yfir almannavarnarástandi við hlið Fairford herstöðvarinnar eftir að nokkrir menn voru handteknir. Þeir eru grunaðir um alvarleg brot á lögum um sprengiefni. Herstöðin hefur verið notuð af bandarískum sveitum til að gera árásir í Mið-Austurlöndum, sem hefur leitt til mótmæla á svæðinu. Sérsveitir á vegum hersins rannsaka nú ökutæki í nágrenninu.


