Kai Cenat olli miklum hamagangi í miðbæ Reykjavíkur
Bandaríski streymarinn Kai Cenat vakti mikla athygli þegar hann gæddi sér á slátri og sviðasultu í miðbænum. Yfir 64 þúsund manns fylgdust með honum í beinu streymi.
Mikill fjöldi ungmenna fylgdi bandaríska áhrifavaldinum Kai Cenat eftir þegar hann heimsótti miðborg Reykjavíkur um helgina. Cenat, sem er einn vinsælasti streymari heims, prófaði meðal annars þjóðlega íslenska rétti og fór í víkingaleiki, en hamagangurinn var slíkur að einhver náði að stela húfunni af honum í klandrinu.

