Tala látinna á Gaza komin yfir 74 þúsund
Heilbrigðisyfirvöld á Gaza greina frá því að yfir 74 þúsund manns hafi fallið í stríðinu, þrátt fyrir gildandi vopnahlé.

Heilbrigðisráðuneytið á Gaza greindi frá því að tala látinna í stríðinu væri nú komin yfir 74.000. Þótt vopnahlé hafi tekið gildi 10. október hafa loftárásir Ísraelshers haldið áfram í sjálfsvörn.



