Deilt um flutning bavíana í Höfðaborg
Íbúar í Höfðaborg eru klofnir í afstöðu sinni til áforma um að flytja hjarðir bavíana sem hafa valdið usla í byggð yfir á afvikin verndarsvæði.

Borgaryfirvöld í Höfðaborg áforma að flytja tvær hjarðir bavíana sem hafa ítrekað brotist inn á heimili og í verslanir í leit að æti. Dýraverndunarsinnar mótmæla áætluninni og telja að finna eigi leiðir til sambúðar, en íbúar kvarta yfir miklum skemmdum og óþrifnaði af völdum dýranna, sem gerir meðal annars sölu fasteigna erfiða.

