Spádómleg klassík um hættur tækninnar endurútgefin
Bók Paulinu Borsook, Cyberselfish, sem gagnrýndi menningu Sílikondalsins þegar árið 2000, kemur nú aftur út og þykir eiga meira erindi en nokkru sinni fyrr.

Þegar Paulina Borsook gaf út bók sína Cyberselfish árið 2000, vakti hún athygli fyrir skarpa gagnrýni á menningu og hugmyndafræði tæknigeirans í Kaliforníu. Hún benti á andúð tæknimanna á ríkisvaldi, þrátt fyrir að vöxtur þeirra byggði oft á ríkisstyrkjum, og varaði við afleiðingum þess að setja hagnað ofar öllu öðru. Nú, ríflega tveimur áratugum síðar, þykja varnaðarorð hennar um karllæga yfirburði og skort á samfélagslegri ábyrgð í tækniheimum eiga fyllra erindi en áður, og er bókin því endurútgefin í haust.



