Samúð dugar ekki til andspænis grimmdinni á Gasa
Forseti palestínska Rauða hálfmánans segir ástandið á Gasa vera skelfilegt og að alþjóðalög séu brotin á hverjum degi. Aðeins pólitískur vilji geti breytt stöðunni.
Dr. Younis Al-Khatib, forseti palestínska Rauða hálfmánans (PRCS), varar við því að íbúar á Gasa séu að gleymast í átökunum sem nú standa yfir. Hann bendir á að grundvallarréttindi óbreyttra borgara, svo sem aðgangur að hreinu vatni og öruggu húsnæði, séu virt að vettugi og að alþjóðalög séu þverbrotin. Al-Khatib, sem hóf feril sinn sem sjálfboðaliði, leggur áherslu á að mannúðaraðstoð ein og sér dugi ekki til heldur þurfi pólitískan vilja ráðamanna til að binda enda á þessar hörmulegu aðstæður.


