Kamilla Bretadrottning sögð öskureið vegna nýrrar bókar
Breska konungsfjölskyldan er sögð í uppnámi yfir væntanlegri bók bróður Díönu prinsessu sem fjallar um líf systur hans og samband hennar við hirðina.

Kamilla Bretadrottning er sögð vera bálreið yfir því að ekki hafi tekist að koma í veg fyrir útgáfu nýrrar bókar sem Charles Spencer, bróðir Díönu prinsessu, hefur ritað. Bókin á að varpa nýju ljósi á líf Díönu og reynslu hennar innan konungshallarinnar, sem Kamillu mun þykja vera óheppilegt á þessum tímapunkti. Fréttir af reiði drottningarinnar hafa verið áberandi í bandarískum æsifréttamiðlum og þykja benda til þess að gömul sár séu enn að valda deilum innan bresku krúnunnar.



.jpg)