SNL UK gerir grín að Oasis sem rússneskum njósnurum
Gamanþátturinn Saturday Night Live UK notaði nýjasta þátt sinn til að hæðast að endurkomu Oasis og tengja bræðurna Liam og Noel við rússneska útsendara.

Í nýjasta þætti Saturday Night Live UK var dregin upp brosleg mynd af Oasis-bræðrunum Liam og Noel Gallagher sem rússneskum njósurum sem reyna að stela upplýsingum frá forsætisráðherra Bretlands. Í sketsinum var einnig skotið á uppáhaldslið þeirra bræðra, Manchester City, í tengslum við mál liðsins fyrir brot á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Grínið kemur á sama tíma og miðasala á tónleikaferðalag bandsins fyrir árið 2027 stendur sem hæst, en eftirspurnin eftir miðum virðist engin takmörk eiga.



