Mikill stuðningur við fjársöfnun fyrir Grensásdeild
Guðrún Pétursdóttir, formaður Hollvina Grensásdeildar, segir að fólk taki söfnun fyrir deildina einstaklega vel en hún hefur starfað með samtökunum um árabil.
Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfræðingur og prófessor emerita, er formaður samtakanna Hollvinir Grensásdeildar. Samtökin sinna mikilvægri fjáröflun fyrir endurbótum á deildinni og þrýsta á stjórnvöld um aukið fjármagn. Guðrún hefur starfað með samtökunum nánast frá stofnun, en hún kynntist starfi deildarinnar fyrst þegar systir hennar slasaðist alvarlega og þurfti á langvarandi endurhæfingu að halda. Hún segir að fólk sýni verkefninu mikla velvild og skilning.


