Icelandair hættir að fljúga til Halifax
Flugfélagið Icelandair mun hætta flugi til Halifax í Kanada eftir 18. október nk. og verður áfangastaðurinn ekki á sumaráætlun næsta árs.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, hefur staðfest að félagið muni hætta flugi til Halifax í Kanada síðar í október. Flug verður í boði til 18. október en eftir það hverfur bærinn af leiðakerfi félagsins, að minnsta kosti í bili. Ákvörðunin er hluti af reglubundnum breytingum á flugáætlun til að mæta eftirspurn, en þjónustufulltrúar félagsins höfðu áður sagt Halifax vera vinsælan áfangastað.

