Bónusdeildin hefst í kvöld: Spáð er heitri titilvörn hjá Njarðvík
Bónusdeild kvenna í körfuknattleik fer af stað með þremur leikjum í kvöld. Körfuknattleikssérfræðingar spá því að Njarðvík muni verja titilinn en töluverðar breytingar hafa orðið á öðrum liðum deildarinnar.
Bónusdeild kvenna í körfuknattleik hefst með þremur leikjum í kvöld og því er ekki úr vegi að spá í veturinn sem framundan er. Helena Sverrisdóttir, körfuboltasérfræðingur og fyrrum landsliðskona, segir spennandi tímabil í vændum þótt hún spái Njarðvíkingum titilvörn. Spá formanna, þjálfara og fyrirliða liðanna var birt á dögunum og þar verma Njarðvíkingar efsta sætið. Helena tekur í sama streng: „Ég held að það sé ekki annað hægt en að taka undir það. Þær eru rosalega djúpar og mörg lið í vetur sem eru með fín byrjunarlið en eru kannski aðeins þynnri á bekknum. Njarðvík er með stóran hóp og svipað lið og í fyrra. Ég held að þær verði jafnsterkar ef ekki sterkari núna.“
Fjölnir er nýliði í deildinni og fékk sæti eftir að Aþena dró sig úr keppni. Helena á ekki von á mörgum sigrum hjá þeim þar sem liðið er ungt, en þær muni þó öðlast dýrmæta reynslu. KR hafnaði í þriðja sæti í fyrra og hefur styrkt sig með landsliðskonunni Söru Rún Hinriksdóttur, sem Helena telur risastóran liðsauka. Hún spáir því að KR verði eitt af sterkustu liðunum og muni stríða Njarðvík.
Helena nefnir einnig Grindavík og Tindastól sem mögulega senuþjófa. Tindastóll hefur fengið marga erlenda leikmenn en hópurinn er heldur þunnur. Þrír leikir eru á dagskrá í kvöld: KR-Stjarnan, Ármann-Grindavík og Tindastóll-Keflavík.



