Árni Páll Árnason einn þriggja sem ákváðu að stefna Íslandi vegna bókunar 35
Árni Páll Árnason, fulltrúi í stjórn ESA, kom sjálfur að ákvörðun um að stefna íslenskum stjórnvöldum vegna innleiðingar á bókun 35 og dregur hæfi sitt ekki í efa.

Árni Páll Árnason, sem situr í stjórn Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA), var einn þeirra þriggja sem tóku ákvörðun um að stefna íslenskum stjórnvöldum. Málið snýr að ófullnægjandi innleiðingu á svokallaðri bókun 35 við EES-samninginn. Í samtali segist Árni Páll ekki draga hæfi sitt í efa þrátt fyrir íslenskan uppruna sinn. Hann bendir á að íslensk stjórnvöld hafi verið lengur að bregðast við en stjórnvöld í Noregi og Liechtenstein hvað þetta varðar.

