„Strákar eigi bara ekki að gráta og tala um tilfinningar sínar“
Ungmenni á Forvarnardeginum ræddu mikilvægi þess að strákar geti opnað sig um andlega líðan í stað þess að reyna alltaf að vera harðir.
Andleg heilsa var í brennidepli á Forvarnardeginum í Verslunarskóla Íslands þar sem lögð var áhersla á samtal og samkennd. Edda Sól Óladóttir og Pétur Leó Guðjónsson bentu á að kynjabundnar staðalímyndir komi oft í veg fyrir að strákar leiti sér hjálpar, en mikilvægt sé að rjúfa þá þögn. Markmið dagsins er að efla vellíðan og lýðheilsu meðal ungmenna í 9. bekk og framhaldsskólum.
