Vætuveður heldur áfram á Suður- og Vesturlandi — Von á talsverðri rigningu næstu daga
Það rignir víða um land í dag og búist er við áframhaldandi rigningu á Suður- og Vesturlandi, en Norðausturland sleppur betur.
Landsmenn mega búast við áframhaldandi vætuveðri næstu daga, sérstaklega þeir sem búsettir eru á Suður- og Vesturlandi. Samkvæmt spám Veðurstofunnar mun rigna víða í dag, þótt einna síst verði úrkoman á Norðaustur- og Austurlandi. Sérstök varnaðarorð hafa verið gefin út fyrir morgundaginn þar sem búist er við talsverðri rigningu á sunnanverðu landinu. Jörð er þegar víða blaut eftir mikla rigningu síðustu daga, sem hefur leitt til þess að vegir á borð við Þórsmerkurveg hafa farið í sundur vegna vatnavaxta. Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig.
