Rannsókn á stöðu heimilislausra: Húsnæði eitt og sér tryggir ekki félagsleg tengsl
Ný rannsókn sýnir að húsnæði eitt og sér nægir ekki til að rjúfa félagslega einangrun heimilislausra í Reykjavík og skapa tilfinningu fyrir því að tilheyra.

Nýleg rannsókn varpar ljósi á að húsnæði eitt og sér leiði ekki sjálfkrafa til félagslegra tengsla, þátttöku fólks eða tilfinningar þess til þess að tilheyra í samfélaginu. Kona í Skjólinu lýsir stöðu sinni með orðunum: „Ég er rosalega félagslega einangruð“. Niðurstöðurnar benda til þess að huga þurfi betur að félagslegum stuðningi og úrræðum til að rjúfa einangrun þeirra sem hafa misst heimili sitt.
