Ríkið yrði af 1,6 milljarða tekjum ef gjaldskrárefni fylgdu verðbólgumarkmiði
Fjármálaráðuneytið áætlar að ríkissjóður myndi tapa 1,6 milljörðum króna ef gjaldahækkanir yrðu takmarkaðar við 2,5 prósent.
Afkoma ríkissjóðs myndi versna umtalsvert ef fyrirhugaðar gjaldahækkanir ríkisins myndu taka mið af verðbólgumarkmiði Seðlabankans í stað raunverulegrar verðbólgu. Í svari fjármála- og efnahagsráðuneytisins við fyrirspurn kemur fram að munurinn nemi um 1,6 milljörðum króna. Frumvarp til fjárlaga fyrir næsta ár gerir ráð fyrir litlum afgangi, eða um 4,7 milljörðum, og myndi slík breyting því þrengja verulega að svigrúmi ríkisins. Umræðan hefur snúist um hvort ríkið eigi að ganga á undan með góðu fordæmi í baráttunni við verðbólguna með því að halda aftur af hækkunum opinberra gjalda.
