Evrópusambandið rannsakar sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum
Evrópskar neytendaverndarstofnanir hafa hafið samstilltar aðgerðir gegn níu tölvuleikjaframleiðendum vegna notkunar á sýndargjaldmiðlum.
Neytendaverndarstofnanir í Evrópu beina spjótum sínum að níu tölvuleikjaframleiðendum í samhæfðum aðgerðum. Markmið aðgerða samstarfsnets stofnananna er að treysta réttindi tölvuleikjaspilara en þær snúa að því að tryggja gagnsæi og sanngirni við notkun sýndargjaldmiðla í tölvuleikjum. Leikirnir sem voru teknir til frekari skoðunar eru meðal annars Minecraft, Candy Crush Saga, Valorant og Clash of Clans.
Hvað þýðir þetta fyrir Ísland?
Íslendingar eru stórtækir í tölvuleikjanotkun og munu þessar aðgerðir Evrópusambandsins tryggja íslenskum neytendum svipaðar varnir gegn ógegnsæjum sýndargjaldmiðlum.



