Heimir Hallgrímsson slítur blaðamannafundi í Serbíu eftir ásakanir um kynþáttaníð
Upp úr sauð á blaðamannafundi írska landsliðsins fyrir leikinn gegn Ísrael þegar blaðamaður bar fram ásakanir um kynþáttaníð í garð leikmanna.
Írland og Ísrael mætast í Serbíu á morgun í fótbolta en mikil spenna er í kringum leikinn. Á blaðamannafundi í dag vildi Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari Íra, ekki láta draga sig inn í pólitískar deilur eða ásakanir um kynþáttaníð sem hafa verið uppi vegna fyrri leiks liðanna. Þegar blaðamaður frá Ísrael sakaði leikmenn Írlands um að hafa kallað leikmenn sína „apa“ í fyrri leiknum, greipu starfsmenn írska knattspyrnusambandsins inn í og neituðu ásökununum alfarið. Fundinum var að lokum slitið þar sem blaðamaðurinn neitaði að skila hljóðnemanum og hélt áfram að hrópa ásakanir.


