Jóhann Páll Jóhannsson ráðherra hefst handa við að fylla í skurði og endurheimta votlendi
Ríkisstjórnin hefur sett af stað stórátak í endurheimt votlendis á ríkisjörðum með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, tók í gær fyrstu skóflustunguna að endurheimt votlendis á ríkisjörðinni Sogni í Ölfusi. Þetta er hluti af stærra átaki þar sem standi til að loka um 23 kílómetrum af framræsluskurðum á fimm ríkisjörðum í haust. Jóhann Páll segir þetta mikilvæga loftslagsaðgerð sem jafnframt sé náttúruverndarmál er styðji við líffræðilega fjölbreytni og búsvæði fugla. Markmiðið er að endurheimta allt að 225 hektara af votlendi á næstunni.



