HK er enn án stiga í úrvalsdeildinni í handbolta
HK tapaði fjórða leik sínum í röð þegar liðið mætti ÍBV í dag. Eyjakonur unnu öruggan sigur.
Leik HK og ÍBV í úrvalsdeild kvenna í handbolta lauk í dag með sigri ÍBV, 29-24. Með sigrinum eru Eyjakonur komnar með sex stig í deildinni og skipa sér í fremstu röð, en þeim er spáð góðu gengi í vetur. HK hefur hins vegar farið illa af stað og tapað öllum fjórum leikjum sínum til þessa. Liðið er því enn án stiga á botni deildarinnar ásamt KA/Þór.


