600 mótmælendur gegn lokun Ljósheima á Selfossi
Heilbrigðisráðherra fékk undirskriftarlista með 600 nöfnum þar sem mótmælt er lokun hjúkrunarheimilisins Ljósheima. Samhliða nýbyggingu við sjúkrahúsið á Selfossi verður heimilið lokað og 20% hjúkrunarrýma í Árborg munu hverfa.
Heilbrigðisráðherra Ölma D. Möller fékk fyrir hádegi afhentan undirskriftarlista með 600 nöfnum þar sem lokun hjúkrunardeildarinnar Ljósheima við sjúkrahúsið á Selfossi er harðlega mótmælt. Aldís Sigfúsdóttir, sem býr á Selfossi, afhenti henni listann í heilbrigðisráðuneytinu við Skúlagötu í Reykjavík.
Samhliða nýbyggingu um 5.000 fermetra við sjúkrahúsið á Selfossi verður hjúkrunarheimilið Ljósheimar lagt niður. Þar eru tuttugu hjúkrunarrými og lokun þeirra myndi þýða að 20% hjúkrunarrýma í Árborg myndu hverfa. Aldís og mótmælendur segja þetta stórt högg fyrir stærsta þjónustukjarna héraðsins.
Aldís bendir á að Ljósheimar sé nýlegt húsnæði sem var tekið í notkun árið 2008 og byggt sérstaklega sem hjúkrunarheimili. Hún telur að það sé óhagkvæmt að rústa því og að framkvæmdin myndi kosta um hálfan milljarð. Hún leggur til að byggja við vesturendann við heilsugæsluna í stað þess.

