Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar um kjarasamninga ekki tilbúinn
Ríkisstjórnin hefur ekki lokið við aðgerðalista sem ætlað er að styðja kjarasamninga á almennum vinnumarkaði. Samtal um endanlega útgáfu listans og sameiginlega yfirlýsingu stendur enn yfir.
Aðgerðalisti ríkisstjórnarinnar sem ætlað er að styðja við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði er enn ekki fullfrágenginn. Sama á við um sameiginlega yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins.
Samkvæmt tilkynningu frá upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins stendur enn yfir samtal um endanlega útgáfu aðgerðalistans og yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar ásamt Alþýðusambandi og öðrum aðilum vinnumarkaðarins.



