Rúnar Páll Sigmundsson snýr aftur til Stjörnunnar

Rúnar Páll Sigmundsson snýr aftur til Stjörnunnar sem knattspyrnustjóri. Hann stýrði liðinu frá 2013 til 2021 og vann með því Íslandsmeistartitil 2014 og bikartitil 2018.

RÚV Íþróttir15. október 2026 kl. 18:12
Rúnar Páll Sigmundsson snýr aftur til Stjörnunnar
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Rúnar Páll Sigmundsson snýr aftur í Garðabæinn og mun stýra Stjörnunni í Bestu deild karla í fótbolta. Rúnar stýrði Stjörnunni frá 2013 til 2021 og var þar mjög farsæll. Undir hans stjórn varð Stjarnan Íslandsmeistari 2014 og bikarmeistari 2018, sem eru einu stóru titlarnir sem karlalið Stjörnunnar hefur unnið.

Stjarnan kaupir Rúnar frá Gróttu, þar sem hann hefur starfað undanfarin tvö ár. Rúnar tók við liði Gróttu í 2. deild og stýrði liðinu upp í Lengjudeild. Sem nýliðar voru Gróttumenn um tíma í baráttu um að komast í umspil en enduðu að lokum um miðja deild. Rúnar hafði nýverið skrifað undir endurnýjun á samningi sínum við Gróttu til þriggja ára.

Á sjö tímabilum sínum með Stjörnunni endaði liðið aldrei neðar en í 4. sæti. Árið 2021 sagði Rúnar upp störfum og tók síðar við Fylki. Stjarnan lét Jökul Elísabetarson og Jón Þór Hauksson fara í sumar og stýrði nokkura manna teymi liðinu eftir brotthvarf Jóns Þórs.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 15. október 2026 kl. 18:12
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir