Þakplötur losnuðu af íþróttahúsinu á Grundarfirði við storminn
Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út á Grundarfirði þegar þakplötur byrjuðu að losna af íþróttahúsi bæjarins vegna hvassviðurs. Veðurstofan varaði við stormum og hvassviðri á stórum hluta landsins.
Björgunarsveitin Klakkur var kölluð út á Grundarfirði þegar þakplötur byrjuðu að losna af íþróttahúsi bæjarins. Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi bæjarins, segir að björgunarsveitin sé komin ofan á þakið og byrjuð að reyna að festa þakplöturnar niður.
Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir að ekki séu fleiri útköll í gangi vegna veðursins sem stendur. Von er á hvassviðri og stormum á stórum hluta landsins, sérstaklega á vestanverðu landinu, og gular viðvaranir eru í gildi víða frá og eftir hádegi.
Veðurstofan varar sérstaklega við því að lausamunir gætu fokið og búast má við rigningu og talsverðri úrkomu um tíma. Hvassasta veðursins er að vænta í Breiðafirði og verður appelsínugul viðvörun í gildi frá 16 til 20 á svæðinu.


