Lögreglan greip 13 ára stúlku með grímum á vitunum
Óeinkennisklæddir lögreglumenn með grímur gripu 13 ára stúlku höndum við rannsókn á fíkniefnainnflutningi. Nefnd um eftirlit með lögreglu gagnrýndi aðgerðina og beinir tilmælum til embættisins um að betur sé gætt hagsmuna barna.
Stúlkan var ein heima þegar bankað var harkalega á rúðu á neðri hæð hússins. Þegar hún opnaði dyrnar blöstu við þrír óeinkennisklæddir menn með grímur fyrir vitunum. Hún varð hrædd og hljóp inn í húsið, en einn mannanna hljóp á eftir henni, greip í hendur hennar og hélt þeim fyrir aftan bak þar sem hún reyndi að hlaupa upp stigann.
Stúlkan grét og öskraði á móður sína þar til lögreglukona kom að og sagði henni að þeir væru á vegum lögreglunnar. Hún var í haldi lögreglunnar í um 15 mínútur. Lögregluaðgerðin snerist um rannsókn á fíkniefnainnflutningi en brotamaðurinn var leigjandi í húsinu og tengdist stúlkunni ekki. Eftir því sem lögreglan segir vissu þeir ekki að í húsinu væru aðrar íbúðir sem væru leigðar út.
Móðir stúlkunnar kvartaði til Nefndar um eftirlit með lögreglu. Í fyrra skipti sem málið var tekið fyrir hélt lögreglan á Suðurnesjum því ranglega fram að stúlkan hefði fengið að hringja í móður sína. Gögn úr síma móðurinnar sýndu aftur á móti að ekkert slíkt símtal átti sér stað. Lögreglan segir að þessu hafi verið haldið fram fyrir mistök og að þeir hafi talið skjáskot af síma stúlkunnar, sem sýndi ósvarað símtal, vera sönnun þess að hún hefði fengið að hringja.
Í ákvörðun nefndarinnar segir að þrátt fyrir að atburðarásin hafi haft djúpstæð áhrif á stúlkuna sé ekki beinlínis um ámælisverða háttsemi lögreglu að ræða. Nefndin beinir þeim tilmælum til embættisins að hagsmunir barna séu sérstaklega hafðir í huga við lögregluaðgerðir og að óeinkennisklæddir lögreglumenn, sem beiti þvingunaraðgerðum, geri grein fyrir sér, sér í lagi þegar börn eða ungmenni eiga í hlut.


