Cristiano Ronaldo þénar fyrir 255 evra sektinni á 39 sekúndum
Cristiano Ronaldo fékk 255 evra sekt og 30 daga bann fyrir að yfirgefa herbúðir Portúgals án leyfis. Sektin nemur aðeins 0,00012% af árstekjum hans og hann þénar fyrir henni á rúmum hálf mínútu.
Cristiano Ronaldo hefur fengið að vita refsingu sína fyrir að yfirgefa herbúðir portúgalska landsliðsins í Þjóðadeildinni án leyfis. Refsingin er 255 evra sekt og 30 daga bann frá og með deginum sem hann yfirgaf liðið.
Bannið reynist þó hlægilegt í ljósi aðstæðna. Ronaldo yfirgaf liðið 30. september og 20 dagar eru þegar liðnir. Næst spilar Portúgal 14. nóvember og bannið verður þá löngu liðið.
Sectin er enn hlægilegri. 255 evrur eru um 35.000 krónur. Ronaldo er talinn þéna um 250 milljónir evra á ári hjá Al-Nassr. Sectin nemur því aðeins 0,00012% af árstekjum hans og það tekur hann 39 sekúndur að vinna sér inn fyrir henni. Til samanburðar væri sambærileg sekt fyrir meðal Íslending um 98 krónur.



