Víkingur spilar í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari Jónssyni

Víkingur mun spila lokaleik Bestu deildar karla í sérstakri góðgerðartreyju sem hönnuð er til styrktar markvarðanum Ingvari Jónssyni, sem glímir við illkynja krabbamein. Allur ágóði treyjusölunnar rennur til Ingvars og fjölskyldu hans.

RÚV Íþróttir22. október 2026 kl. 08:14
Víkingur spilar í góðgerðartreyju til styrktar Ingvari Jónssyni
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Víkingur tekur á móti Fram í lokaleik Bestu deildar karla þetta árið klukkan 16:15 í Víkinni á laugardag. Að leik loknum verður Víkingur krýndur Íslandsmeistari.

Leikmenn Víkings munu spila leikinn í sérstakri góðgerðartreyju sem hönnuð er af 66°Norður og framleidd af Macron. Treyjan verður einnig seld í almennri sölu og mun allur ágóði treyjusölunnar renna óskiptur til Ingvars Jónssonar markvarðar Víkings og fjölskyldu hans.

Ingvar hefur ekki getað spilað fótbolta síðan hann greindist með illkynja krabbamein um miðjan maí og hefur háð baráttu við sjúkdóminn síðan. Bergur Guðnason sá um hönnun treyjunnar og liðsmynd Víkings frá árinu 1921 er í aðalhlutverki í hönnuninni.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 22. október 2026 kl. 08:14
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir