Breiðablik skiptir Ólafi Inga Skúlasyni út sem þjálfara

Ólafur Ingi Skúlason hætir sem þjálfari Breiðabliks eftir ár í starfi. Þrátt fyrir að hann gerði liðið að bikarmeisturum í síðasta mánuði enduðu Blikar í 5. sæti Bestu deildarinnar.

RÚV Íþróttir27. október 2026 kl. 21:19
Breiðablik skiptir Ólafi Inga Skúlasyni út sem þjálfara
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Ólafur Ingi Skúlason er hættur sem þjálfari meistaraflokks karla í fótbolta hjá Breiðabliki eftir ár í starfi. Þrátt fyrir að hann gerði Blika að bikarmeisturum í síðasta mánuði hafa Blikar ákveðið að skipta honum út.

Árangur Breiðabliks á nýafstöðnu Íslandsmóti var undir væntingum. Kópavogsliðið endaði í 5. sæti Bestu deildarinnar og tapaði 8-3 fyrir KR í lokaumferð deildarinnar.

Í tilkynningu Blika þakkar Knattspyrnudeild Breiðabliks Ólafi Inga og Jóni Guðna Fjólusyni aðstoðarmanni hans fyrir þeirra störf og óskar þeim velfarnaðar. Jón Guðni lætur einnig af störfum um leið og Ólafur Ingi.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 27. október 2026 kl. 21:19
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir