Donald Trump mun ekki mæta persónulega á fleiri kosningafundi Repúblikana

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að nota fjarfundarbúnað til að ávarpa kosningafundi Repúblikanaflokksins í stað þess að mæta persónulega. Talið er að þetta sé til þess að ná til fleiri kjósenda fyrir þingkosningar á þriðjudag.

RÚV30. október 2026 kl. 12:18
Donald Trump mun ekki mæta persónulega á fleiri kosningafundi Repúblikana
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar ekki að mæta í eigin persónu á fleiri kosningafundi Repúblikanaflokksins eftir kvöldið í kvöld, heldur ætlar hann að ávarpa mannfjöldann gegnum fjarfundarbúnað. Með þessu er talið að flokkurinn vilji ná til fleiri kjósenda síðustu sólarhringana fyrir þingkosningar á þriðjudag en með því að forsetinn þeytist milli fundarstaða.

Trump hyggst þó ávarpa kosningasamkomu á Daytona-strönd í Flórída í kvöld. Forsetinn hóf mikla yfirferð um landið snemma í október með það markmið að auka möguleika á sigri Repúblikana í kosningunum.

Bandarískir miðlar segja að löng ferðalög og mikil ræðuhöld séu tekin að taka sinn toll af heilsu forsetans sem varð áttræður í sumar. Meðal annars hefur hann mismælt sig talsvert, gefið frá sér undarleg hljóð og röddin orðið há. Aðspurður sagði hann hæsina vera vegna þess að hann hefði hrópað á fólk sem viðhafði heimskuleg ummæli.

Mælingar sýna að afstaða kjósenda til forsetans verður neikvæðari með hverjum deginum sem líður. Stjórnmálaskýrendur telja afstöðuna ekki síst skýrast af háu orkuverði, mikilli verðbólgu og meðfylgjandi hækkun framfærslukostnaðar sem bitnar mjög á afkomu almennings.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 30. október 2026 kl. 12:18
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir