Lárus M. K. Ólafsson hættir sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls
Lárus M. K. Ólafsson hefur lokið störfum sem aðstoðarmaður umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Hann var ráðinn í stöðuna í janúar 2025.
Lárus M. K. Ólafsson hefur lokið störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku og loftslagsráðherra. Hann tilkynnti starfslokin í færslu á Facebook í kvöld.
Lárus var ráðinn aðstoðarmaður Jóhanns Páls í janúar 2025 og starfaði þar því aðeins í stuttan tíma.
Í Facebook-færslunni lýsti Lárus starfinu sem jákvæðri reynslu og þakkaði fyrir tækifærið. "Þetta hefur verið geðveikt partý og verður það áfram. Ég kveð með miklu þakklæti og tilhlökku fyrir því sem tekur við hvað sem svo það verður," skrifaði hann.


