Vinstri græn fordæmir hatursorðræðu og þjóðarmorð á Gaza
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs fordæmir hatursorðræðu og krefst aðgerða stjórnvalda gegn henni. Fundurinn ítrekar einnig afdráttarlausan stuðning við palestínsku þjóðina og fordæmir þjóðarmorðið á Gaza.
Flokksráðsfundur Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, haldinn í Reykjavík 8. nóvember 2026, fordæmir hatursorðræðu og hvers kyns niðurlægingu, mismunun eða ógnir sem beinast gegn fólki vegna uppruna, hörundslitar, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, kyntjáningar, fötlunar eða trúar. Fundurinn krefst þess að stjórnvöld fari í sértækar aðgerðir til að uppræta hatursorðræðu og að lagaákvæði þar að lútandi í almennum hegningarlögum sé fylgt eftir af festu.
Flokksráðsfundurinn harmar einnig ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að draga úr stuðningi við óhagnaðardrifið húsnæði. Fundurinn bendir á að hátt húsnæðisverð, okurleiga og háir vextir þrengja að heimilum, ekki síst að ungu fólki, barnafjölskyldum og tekjulágum. Ríki og sveitarfélög verða að tryggja nægt framboð af öruggu húsnæði á viðráðanlegu verði. Fundurinn lýsir jafnframt yfir áhyggjum af því að dregið sé úr fjármögnun til loftslagsmála, náttúruverndar, orkuskipta og nýsköpunar.
Flokksráðsfundur Vinstri grænna ítrekar afdráttarlausan stuðning sinn við palestínsku þjóðina og fordæmir þjóðarmorðið á Gaza og stríðsglæpi sem felast í áframhaldandi hernaðaraðgerðum Ísraels. Fundurinn krefst þess að íslensk stjórnvöld fylgi fordæmingum á alþjóðavettvangi eftir með raunverulegum aðgerðum og banni innflutning á vörum frá Ísrael. Rósa Björk Brynjólfsdóttir, formaður VG, segir að flokkurinn tali mest fyrir umhverfismálum og grænni pólitík og sé einnig sá flokkur sem tali háværast fyrir friðarstefnu.

