Ísland og Grikkland jöfnuðu 1-1 í umspili um EM-sæti U21

Ísland og Grikkland enduðu með jafntefli 1-1 í fyrri leik umspils um laust sæti á EM-lokamóti karla í fótbolta U21 landsliða árið 2027. Hilmir Rafn Mikaelsson kom Íslandi yfir en Grikkir jöfnuðu á grátlegan hátt í uppbótartíma.

RÚV Íþróttir13. nóvember 2026 kl. 05:14
Ísland og Grikkland jöfnuðu 1-1 í umspili um EM-sæti U21
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Ísland og Grikkland gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik umspils um laust sæti á lokamóti EM karla í fótbolta U21 landsliða. Mótið fer fram árið 2027. Ísland var með unnin leik í höndunum en Grikkir jöfnuðu í uppbótartíma á grátlegan máta. Seinni leikurinn fer fram í Grikklandi á sunnudaginn.

Mikil snjókoma hafði veruleg áhrif á leikinn. Þróttarvöllur í Laugardal var nær skjannahvítur og gert var hlé á leiknum til að moka frá línum vallarins. Grikkir léku í hvítum búningum og erfitt var að sjá þá á vellinum. Galdur Guðmundsson átti hættulegustu rispu fyrri hálfleiks þegar hann náði að sóla sig í gegnum tvo varnarmenn en fast skot hans endaði í þverslánni á 18. mínútu.

Ísland fékk víti á 60. mínútu eftir að brotið var á Ágústi Orra Þorsteinssyni. Daníel Tristan Guðjohnsen steig á punktinn en tók afar slaka spyrnu og dreif varla á markið. Davíð Helgi Aronsson var afar nálægt því að koma Íslandi yfir en skalli hans eftir hornspyrnu á 69. mínútu fór fram hjá.

Hilmir Rafn Mikaelsson kom Íslandi yfir á 88. mínútu með föstum skalla eftir fyrirgjöf Ágústar Orra. Grikkir náðu að jafna metin á grátlegan hátt í uppbótartíma. Gestirnir áttu laust skot inn í gegnum þvögu í markteig Íslands og boltinn lak í netið eftir tæklingu Hilmars.

Heimild:
Birt á Fréttavakt: 13. nóvember 2026 kl. 05:14
AuglýsingatworkSveigjanleg skrifstofurými, fundaraðstaða og samvinnurými.

Tengdar fréttir