Arnaldi Mána Finnsson sýknaður í meiðyrðamáli gegn Einari Þór Gunnlaugssyni
Landsréttur staðfesti sýknudóm yfir prestinum Arnaldi Mána Finnssyni í máli sem kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Þór Gunnlaugsson höfðaði gegn honum. Málið á rætur í deilum innan fjölskyldunnar um æskuheimili á Flateyri.
Landsréttur staðfesti sýknudóm yfir guðfræðingnum og prestinum Arnaldi Mána Finnssyni í gær. Föðurbróðir hans og kvikmyndagerðarmaðurinn Einar Þór Gunnlaugsson höfðaði málið gegn honum og er málið afleiðing harðra deilna innan fjölskyldunnar sem hverfast um æskuheimili föður Arnalds Mána, Hvilft á Flateyri.
Húsið er rúmlega hundrað ára gamalt og tæplega 300 fermetrar að stærð. Eignin stendur rétt fyrir utan bæinn og hefur lengi verið umdeild innan fjölskyldunnar.


